Ætti maður kannski að segja eitthvað
hérna...hmmm..já kannski, ég reyni allavega.
Karlinn er
farinn til Íslands aftur, hann fór í dag. Við áttum mjög góða helgi
saman. Á föstudaginn vorum við í Osló (fyrsta skiptið sem ég var
þar...skömm ég veit það). Á laugardaginn fórum við á
Landbúnaðarsýningu í Lilleström, þar voru sko vélar og tæki í
"lange baner". Engir gripir voru á sýningunni, það var svolítið
fúlt. En FULLT af dráttarvélum, ég er eiginlega komin með minn
skammt af vélum fyrir næstu tíu árin eða svo... Við fórum nú
líka í búðir á laugardaginn, það var ágætt eftir 4 klst
tækjasýningu...húff....
Rólegheitin eina á sunnudaginn. Aðeins
kíkt í bækur, hann Baldur minn
hjálpaði mér nú mjög með lærdóminn. Takk kærlega fyrir það... Á
mánudaginn vorum við í Ski sem er næsti bær við Ás. Bara að rölta í
"mollinu" og hafa það gott.... Keyptum jólagjafir og
svona....
Nú byrjar svo bara "dagligdagurinn"
aftur...það er ekkert spes, en það verður bara að vera
þannig...
Í lokin
langar mig að senda elsku bestu vinkonu míni sérstaka kveðju... Hún
á bágt, en stelpan er sterk og ég er mjög stolt af henni. Love you
Birgit mín... Þú ert hetja... Hlakka til að koma til þín um
jólin....
Jæja áfram með lærdóminn... og hætta að
hugsa um hvað það væri nú gott ef ég hefði geta farið með
Baldri mínum til Íslands hér
áðan...