Dansaðu eins og enginn sjái til þín...

...elskaðu eins og þú hafir aldrei verið særð!

24.12.2006 17:34:13 / elin

24.12.2006

GLEÐILEG JÓL ÖLL SÖMUL


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 12:20:20 / elin

20.12.2006

Nú er alveg farið að sjá fyrir endann á þessari dvöl hérna í Noregi. Ég var í síðasta prófinu í gær og það er bæ ðe vei einnig síðasta prófið mítt ever. Ég er nú búin með alla kúrsa...kannski ég á eftir að endurmennta mig einhverntímann og þarf þá kannski að fara í próf, en í þessu námi sem nú er eru ekki fleiri próf.

Prófið í gær gékk allt í lagi. Ég næ þessu alveg, en fæ ekki svaka einkunn. Enda stefndi ég ekkert á það.

Í kvöld fer ég síðan heim til Færeyja og verð þar til 3.janúar. Baldur minn kemur síðan heim til Færeyja þann 27. desember, það er sko vika þangað til. Ég hlakka ekkert smá mikið til að sjá hann aftur enda langt síðan síðast. Við verðum síðan í rólegheitum heima í Færeyjum um áramótin, það verður æðislegt...

Dvölin hérna úti hefur verið bærileg verð ég að segja. Ég er búin að bæta mikið við þekkingu mína, en þetta hefur verið erfitt. Bæði hefur námið verið erfitt og svo hefur verið mjög erfitt að vera hérna úti, langt í burtu frá öllum sem manni þykur vænt um. Ég hef verið hérna í rúma 100 daga og núna er síðasti dagur upprunninn. Mér finnst það svolítið ótrúlegt. Held að ég fatta þetta ekki fyrr en ég er komin heim í Fjalsgötuna. En ég verð komin alla leið heim um hálf ellefu í kvöld.

Mér hefur gengið ágætlega hérna úti held ég og er það mikið til Baldri að þakka. Hann hefur hjálpað mér mikið í náminu, hann hefur reynt eftir bestu getu að fá mig til að sjá björtu hliðarnar þegar ég hef verið niðurdregin, hann hefur komið í heimsókn og þannig gert það að það alltaf var eitthvað til að hlakka til og létti það dvölina mikið. Þakka þér kærlega fyrir það ástin mín :)

Þetta verður síðasta færslan mín héðan úr Ási, næsta færsla verður líklega skrifuð heima í Fjalsgötu. Það verður þá fyrir jól og bið ég ykkur vel að lifa þangað til...


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 16:48:37 / elin

17.12.06

Ohhh við töpuðum gegn rússum í úrslitaleiknum í handbolta...Ógeðslega fúlt... Já nú sagði ég við, ég meina sko Norge tapaði. Það er ekki hægt að vera hálfur normaður, hálfur íslendingur og hálfur færeyingur...þannig að ég held bara áfram að vera heill færeyingur.

Eins og þið vitið var ég í prófi á föstudaginn, munnlegu prófi í "Biologiske aspekter i husdyravlen" eða "Biological aspects in animal breeding"... jú takk, það hjálpaði að Elva og Bebba óskuðu mér góðs gengis. Mér gékk ágætlega þakka ykkur fyrir. Var ekki sérstaklega bjartsýn þegar ég kom út úr prófinu, bjóst við að fá í mesta lagi C, sem hefði reyndar verið ágætis einkunn (hérna er skalinn A-F þar sem A er best og F er fall), en ég fékk ekki C, heldur aðeins hærra en það og var mjög sátt.

Nú er ég hinsvegar að læra undir annað próf sem á að vera á þriðjudaginn og Guð minn góður. Þar fæ ég sko F eða E...vona samt að ég næ þessu og fæ því E. En ekki er ég nú bjartsýn á það skal ég segja ykkur. Ég veit ekkert í minn haus, nákvæmlega ekki neitt. Er að tapa mér hérna, langar bara að leggjast í rúmi og gráta og gráta og gráta...mæta svo í prófið og gráta svo meir.

Fór til Regin og Rigmor í gær og fékk jólaglögg það var mjög gott. Ég náði reyndar að hella heilum bolla með glögg í fangið á mér og það var HEITT... og ekki sérstaklega þægilegt að fá þessa sykurleðju á sig. Peysan sem ég var í er örugglega eyðilögð en ég vona að það sleppur til með buksurnar, lagði þær í bleyti um leið og þetta skeði og Oddný tók þær síðan með sér heim og ætlaði að þvo þær fyrir mig þessi elska.

Jæja verð að halda áfram að skilja ekki neitt...

Og nú þarf ég mjög mikið á góðum straumum að halda....og ég finn ekki fyrir þeim nema þeir koma hingað í komment... Takk fyrir takk!!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 20:48:31 / elin

14.12.06

Gangi mér vel í prófinu á morgun... Já takk takk...

Ég er að farast úr stressi 8|


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 08:32:33 / elin

13.12.06

Bráðum kemur heimsækjandi númer 16.000 inn á síðuna. Bara fylgjast með...

Nú er búið að skreyta með seríum og alles heima í Naustabryggju, Baldur minn sá um það og fékk ég myndir. Mjög fallegt hjá kappanum. Ég reyndi að setja myndir hingað inn, en nei, það tókst ekki. Allavega, ég hlakka til að sjá þetta þegar ég kem til Íslands eftir 3 vikur.

Eftir tvo daga er fyrsta prófið hjá mér og finnst mér það lítið spennandi.

Annars er lítið að frétta héðan. Hafdís fer til Íslands á morgun og þá erum við Oddný einar eftir, svolítið skrítið. En styttist í heimför hjá okkur líka...

Hef ekkert við að bæta... Látið ykkur líða vel og gangi ykkur vel í prófum...


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 12:33:42 / elin

11.12.06

Elskaði Rani, hjartaliga tillukku við degnum. Fastur gleðir seg at síggja teg um nakrar dagar. Muss og klemm...

Nú verðið þið, sem ekki hafið fengið þetta frá mér á msn, að kíkja aðeins á þetta myndband hérna http://www.videotiger.com/verydrunkvideo.shtml , þetta er frekar ógeðslegt, en algjör snilld samt sem áður. Ótrúlegt með þessar fyllibyttur...ekki satt Steingrímur... Steingrímur spurði mig hvort þetta minnti mig svona mikið á hann og hvort það var þess vegna sem ég sendi honum þetta á msn... En svo er ekki...

Próflestur hér... áfram með þetta. Genetic size-scaling...æði sæði.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 14:12:35 / elin

09.12.06

Það heppnaðist aldeilis vel, hvað komment varðar, að setja fram svona spurningu eins og ég gerði í síðustu færslu... Og skemmtilegt að sjá að nánast hver einn og einasti sem kommentaði langaði til að kaupa sér jörð fyrir peningin. Svona á maður skemmtilega landbúnaðar vini...eða þannig :D Ég myndi nú líklega sjálf kaupa mér jörð, byggja mér nýtt fjós með mjaltaþjóni og fullt af góðum kúm... og það þýðir þá að þær yrðu að vera útlendskar eins og þið vitið.

Áðan fór ég inn á www.eb.dk, þar sá ég pistill um stelpu sem var næstum því lend í nauðgara á dögunum. Maður einhver elti hana þegar hún labbaði heim úr búð í Århus, síðan stökk hann á hana og ætlaði aldeilis að "fáa sær uppá træið". En nei...kerlingin var sniðug, hún sagði við hann "Jeg har AIDS"...og maður lét sig hverfa... Mér finnst þetta snilld. Þetta var nottla ekki satt hjá henni, hún var ekki með AIDS, en það virkaði að ljúga fyrir karl ræflinum og hún slapp við að verða nauðguð... ;) Munið þið þetta stelpur mínar...

Annars er bara próflestur hjá mér þessa dagana og mér finnst það ekkert gaman.

Styttist í að ég komist heim og það er gaman.


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 18:04:10 / elin

05.12.06

Var að lesa á www.eb.dk að 52 ára dani vann 25 milljónir danskar krónur í lotto í síðustu viku... Ég segi bara Heppinn hann...

Hef verið að velta aðeins fyrir mér hvað ég myndi gera ef ég myndi allt í einu fá 25 milljónir danskar krónur inn á reikningin... En ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég myndi gera. Eitt veit ég..ég myndi ekki hætta að vinna. Það væri of leiðinlegt.

Hvað mynduð þið gera ef þið fenguð allt í einu 25 milljónir danskar krónur inn á reikningin?? Það eru sko rúmlega 250 milljónir íslenskar krónur...

Kommentið nú!!


» 12 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 22:27:00 / elin

04.12.06

Nú styttist í að þessi dvöl hérna úti verður búin. Og þið vitið bara alls ekki hvað ég hlakka mikið til þess. Þegar ég byrjaði að telja niður voru 56 dagar eftir og núna er 16 dagar eftir. Mér finnst tíminn hafa verið mjög lengi að líða, allavega þegar ég hugsa um svona dagsdaglega, en þegar ég síðan lít yfir öxl og hugsa það þannig þá finnst mér eiginlega eins og ég ekki hef verið hérna sérstaklega lengi. 20. desember fer ég heim til Færeyja og verð þar líklega til 3. janúar, þá fer ég síðan til Íslands. Ohhh mér finnst eins það eru mörg ár síðan ég kom þangað síðast.

Mér finnst ég hafa lært margt á dvölinni hérna úti. Sérstaklega í náminu náttúrulega, en líka búin að kynnast nýju fólki og nýju samfélagi, jú maður lærir víst eitthvað af því líka. Þetta hefur verið mjög erfitt, allavega stundum. Hef fundið fyrir heimþrá og söknuði... mjög mikið. En líklega herðir þetta mann bara, ég vona það allavega. Verð eins og hermaður með brynju þegar ég kem til Íslands. Grjót hörð.... Æ nei líklega verð ég aldrei þannig!!!

Ég er að fara í tvö próf, fyrsta prófið er 15. des, það er munnlegt og nei ég hlakka sko ekki til þess. Finnst munnleg próf hræðileg. Síðan er annað próf 19.des, það er skriflegt. Ekkert spennandi heldur. Vonandi næ ég þessu samt þannig að ég þurfi ekki að fara út aftur til Noregs í janúar í endurtektarpóf. Væri samt ágætt að geta heimsótt Bebbu og Tryggva í leiðinni... En ég stefni ekki að því...sko að falla!!

Enn er verið að velta fyrir sér rómantískri ferð til Nýja Sjálands í mars.... En bara draumur eins og er....það kostar ekkert.

Hafið það gott annars kæru vinir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 18:21:22 / elin

02.12.06

Jólaboðið í Sendiráðinu var mjög fínt skal ég segja ykkur. Nóg var til af mati og ekki minna til af drykkjarvörum. Það var hangikjöt á flatkökum, laufabrauð, smjör, brauð með lifrakæfu, rúgbrauð, síld, skyr (YESSSS), konfekt og eitthvað fleira. Þetta byrjaði um 19 og var búið rúmlega 21...þannig að þetta var nú ekki í langan tíma. En mjög skemmtilegt á meðan á þessu stóð. Bjarni töframaður var með skemmtiatriði og tókst það mjög vel hjá honum.

Fengum meir að segja smá skyr með okkur heim og fékk ég mér vanilluskyr og rjóma í morgunmat....namminamm....besti morgunmatur lengi lengi. Ég var komin heim kl half tólf í gærkvöldið. Notalegur dagur.

Við Baldur erum að velta fyrir okkur að "skreppa" til Nýja Sjálands i mars á næsta ári. Þetta er sko bara hugmynd eins og er, en okkur langar alveg ofboðslega mikið að fara. Hannes og Elva eru þarna "niðurfrá" núna og verða þar í einhvern tíma. Kjörið að nota tækifærið og heimsækja þau. En þetta er allt á "hugsunarstigi", en væri gaman samt. Hríkalega dýrt, en hvað...námsmenn eiga svo mikið af peningum alltaf....eða þannig!! 8|

Jólastemming hérna megin...ekkert skraut og engin kerti...og enginn snjór...en það stoppar mér ekki... Jingle bells jingle bells....Nissumamma og nissupápi....já og öll hin jólalögin...júbííí...Og svo eru ekki einu sinni þrjár vikur þangað til ég kemst heim til Færeyjar...júhúú...

Samt leiðist mér hérna...:$


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 13:01:13 / elin

01.12.06

Það er kominn desember gott fólk og það finnst mér alveg magnað. Mér finnst desember alltaf jafn notalegur mánuður...ef við ekki hugsum um prófin sem nú stundum eru á þessum tíma árs...

En Hafdís á afmæli í dag og óska ég henni hjartanlega til hamingju með daginn og þakka fyrir kökurnar áðan...

Annars er ég að hlusta á Bylgjuna, þessir karlar eru alveg magnaðir. Í dag er dagur rauða nefsins og það er brandara dagur á Bylgjunni. Margir góður brandarar og sérstaklega fyndið þegar þessir snillingar segja frá...

..."Hvað sagði ljóskan þegar hún sá Cheerios?"..."Neiii..sjáið...þarna eru kleinuhringjafræ"... :D

..."Óli kom seint heim úr vinnunni eins og svo oft áður. Þegar hann kom heim stóð konan í hurðinni, tilbúin að fara út í bil, með ferðatöskurnar sínar. Óli spyr konuna hvert hún er að fara...Jú segir konan, ég er að fara til Amsterdam. Nú já segir Óli, hvað ætlarðu að gera þar? Konan svarar þá...ja þar get ég fengið 40.000 kr fyrir það sem ég geri fyrir þig ókeypis á nóttunni. Óli var fljótur, dreif sig inn í herbergið og pakkaði niður í töskur líka og kemur svo aftur fram. Konan spyr þá hvert hann er að fara eiginlega....Jú segir Óli, ég ætla með þér til Amsterdam. Mig langar að sjá hvernig þú getur lifað af 120.000 krónum á ári...." :D

..."Maður einn fór á degi hverjum á veitingastað sem var við hliðina á nautaatsstaði. Maðurinn fékk sér nautaeistu á hverjum degi, stór og gírnileg eistu. Einn dag þegar maðurinn kemur inn á veitingastaðinn og pantar sinn uppáhaldsrétt fær hann disk með tveimur litlum kúlum á... Maðurinn varð heldur hissa og sagði við þjóninn að þetta var nú ekki það sem hann hefði pantað, hann vildi fá nautaeistu... Þá segir þjónninn...ja því miður er það nú þannig að nautið tapar ekki slaginn hvert skiptið...." :D

Jæja nóg í bili... Jólaboð á sendiráðinu í Olso í kvöld. Malt og appelsín, íslenskt konfekt, hangikjöt og flatkökur og kannski eitthvað meira... Mætti svo sem sleppa hangikjötinu...en þetta verður líklega fínt.

Eigið góða helgi...


» 1 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 96459
Klukkan
Könnun
Kynið á barninu
Stelpa
18 atkvæði

Strákur
14 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 32