Dansaðu eins og enginn sjái til þín...

...elskaðu eins og þú hafir aldrei verið særð!

31.07.2007 14:19:40 / elin

31.07.07

Elsku Martha og Steinþór, hjartanlega til hamingju með drenginn. Það er ekki slæmt að eiga afmæli á ólavsöku. Ég kíkti inn á www.fsi.is og fann þar mynd af kappanum, hann er voðalega sætur, en ég get ekki séð neinn Mörthusvip ennþá, það kemur kannski. Mjög mikið krútt þessi drengur. Vonandi gekk þetta allt vel :)

Ólavsökan var góð...mjög góð. Unnsteinn og Óðinn stóðu sig mjög vel í drykkjunni og færeyska matnum. Þeim fannst þessi matur mjög góður og er ég afar sátt við það. Þeir lofuðu pabba að koma aftur á Ólavsöku á næsta ári, við sjáum bara til, en þeir eru hjartanlega velkomnir. Það var mikið sungið og var Unnsteinn þar fremstur í flokki...sama hvort sungið var á íslensku eða færeysku...frekar fyndið. Á sunnudaginn drógum við þá kappa með á kappreiðar, Óðinn var mjög sáttur við það þar sem hann gat skilið hvað var um að vera. Það var nú bara keppt í að komast fyrst í mark...ekkert að spá í gangtegundum eða öðru slíku! Eitthvað sem Óðinn Gíslason gat aldeilis skilið :) Veðrið á ólavsöku var alveg sæmilegt, pínu köld gola, en það var þurrt og er það fyrir öllu á svona dögum. Í dag er hinsvegar alveg ömurlegt veður...

Baldur fór til Íslands í dag og ég fer þann 10. ágúst.

Ég er búin að kommenta á bloggið hans Óðins og hef ég beðið hann um að gefa ítarlega ferðasögu á bloggið sítt. Sjáum til hvort það kemur eitthvað slíkt þar. Verður gaman að lesa hans upplifun.


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 15:23:38 / elin

24.07.07

Þá er allt að verða klárt fyrir ferðalagið, við leggjum í hann klukkan hálf níu í kvöld og verðum komin til Færeyja um hálf ellefu (local time). Ég er búin að setja í tösku, enn sem komið er kemst allt í eina tösku....það er ekki líkt mér. Ég er líklega eins og annað kvennfólk, tek alltaf allt of mikið af fötum með mér í ferðalag og nota ekki einu sinni helminginn!

Óðinn nokkur Gíslason hafði samband við mig á msn áðan...oooog (nú eigið þið að setjast ef þið standið) eeeeen...Óðinn og Unnsteinn eru að koma til Færeyja á Ólafsvöku!! Mjög gaman af því. Þeir fara til Færeyja með Norrænu og aftur til Íslands með flugi. Mjög sniðugt hjá þeim og ég er alveg viss um að þeir eiga eftir að skemmta sér vel. Verið velkomnir til Færeyja Óðinn og Unnsteinn.

Ég kem aftur til Íslands þann 10. ágúst, en Baldur stoppar bara í viku í Færeyjum, það er svo sem ágætt.... Nóg að gera hjá honum á Íslandi, engann tíma til að vera erlendis á þessum tíma árs.

Jæja best að athuga hvort ég kem ekki einhverju fleiru í töskuna...eitthvað sem ég á alls ekki eftir að nota!

Á föstudaginn förum við síðan í 260 manna brúðkaupsveislu...drekkum okkur full, síðan er ólavsöka á laugardaginn og sunnudaginn, þá verður aftur drukkið!! Þetta verður fjör. Það eina, fyrir utan þetta sem ég nefndi, sem við höfum ákveðið að gera er að fara undir Vestmannabjörgini, það er mjög fallegt og vil ég gjarnan sýna mínum heittelskaða þessa fallega dranga og björg...

Hafið það gott á Íslandi gott fólk!! Velkomið að kommenta. Ég skrifa síðan næst frá Færeyjum.

Bless í bili.

E.


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 12:06:14 / elin

18.07.07

Rétt áður en við Baldur lögðum afstað suður um daginn fékk ég sms frá vini mínum þar sem ég var spurð hvort ég væri ein. Ég svaraði því neitandi, en varð jafnframt frekar forvitin og spurði hvers vegna ég átti að vera ein og hvað það var sem þessi vinur minn vildi segja mér. Hann sagði þá að hann ekki vildi segja það via sms og sagði mér að láta sig vita þegar enginn var hjá mér.

Við lögðum síðan afstað suður. Á Blönduósi skrapp Baldur inn í "enn einn (N1) söluskálann" og ég greip tækifærið og hringdi í vin minn...

Ég: "Hæ, hvað var það sem þú ætlaðir að segja mér"

Hann: "Hæ, hvað segirðu gott"

Ég: "jú jú, ég segi allt fínt bara, en hvað ætlar þú að segja mér ?"

Hann:"TIL HAMINGJU!!!!"

Ég...frekar hissa á svip og röddin einnig frekar hissa: "Ha? Til hamingju? Með hvað?" (mundi ekki eftir hafa nokkurn tímann átt afmæli þennan dag í júlí)

Hann: "Nú..þú ert ólétt!!"

Ég: "Haaaa??? Þú segir mér nú aldeilis fréttir... (hugsaði með mér..Gvuuuð er ég orðin svona feit)...ég er ekki ólétt karlinn minn!"

Hann...frekar hissa: "Ha? Ertu ekki ólétt...??"

Ég: "Nei ég er sko aldeilis ekki ólétt..."

Hann: "Nú...mér var sagt að þú sért ólétt...heyrði það frá vinkonu minni sem heyrði það frá vini sinum...." (sem síðan líklega hefur heyrt það frá einhverjum öðrum)

Samtalið endaði síðan og við vorum sammála um að ég er ekki ólétt!!!

Jæja við erum að fara upp að Hesti þar sem skóflustunga nýju nautastöðvarinnar verður tekin...síðan verður kaffi á Ásgarði...

Á þriðjudaginn förum við síðan heim til Færeyja og er ég frekar spennt fyrir því, veit ekki með Baldur...

Annars er ekkert í fréttum nema það að ég er lasin í góða veðrinu...en gott að verða veik núna og ekki eftir viku þegar við verðum komin til Færeyja.

Hafið það gott.

E.


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 10:25:09 / elin

11.07.07

Tillukku við degnum í gjár Teitur, og tillukku við degnum í dag Cecilia...já og Sigrún til hamingju með 50 ára afmælið í dag!! :)

Janus afi minn heitinn var illa haldinn af Alzheimer síðustu ár ævinnar. Hann var misslæmur frá degi til dags. Kem með smá dæmi frá degi þar sem hann var nokkuð slæmur...mundi ekki neitt og vissi ekki hvar hann var í heiminum. Hann og konan hans, Kristina, fóru í búð eins og þau gerðu alltaf á laugardögum, í búðinni var einnig veitingasala og þau fengu sér að borða. Þegar það var búið ætlaði Kristina að verlsa í matinn, en afi nennti ekki með henni í það, þannig að hann ætlaði nú aldeilis að fara bara út í bil að bíða eftir elskunni sinni. Afi fór út á bílastæði þar sem hann stuttu áður hefði lagt bilnum sínum...en hvar var nú billinn farinn? Afi fann ekki bilinn sinn og brá á það ráð að fara afstað fótgangandi (búðin er í 15-20 mínútna akstursfjarlægð frá heimili þeirra hjóna), veit ekki alveg hvort hann bjóst við að finna leiðina heim þar sem hann ekki einu sinni rataði í bilinn sinn á bilastæðinu. Allavega kemur Kristina út úr búðinni stuttu seinna og finnur engan mann...Afi var horfinn. Kristina vissi ekkert í sinn haus og hringdi í pabba minn, sonur Janus afa, og bað hann um að keyra í átt að búðinni og leita að pabba sínum. Pabbi svo gerði og fann afa. Hann stoppaði bilnum og bauð honum inn. Jú afi kom í bilinn og þeir spjölluðu um daginn og veginn. Þegar þeir voru búnir að keyra í smá stund segir afi við pabba "segðu mér...hver ert þú?" Pabba brá nú heldur betur og sagðist vera Grethard sonurinn...., þá segir afi "nú já já...ég fannst mig kannast við andlitið" :)

Pabbi fór síðan með afa aftur í bilinn sinn og lét hann elta sig heim til þeirra. Kristina var með honum í bil...ekki mjög gáfulegt að láta svona mann keyra, en það var gert samt sem áður. Þegar þau nálguðust húsinu þeirra stoppaði pabbi aðeins frá húsinu þannig að afi gat tekið fram úr pabba og lagt bilnum á bilastæðið við húsið þeirra....en Nei...afi stoppaði fyrir aftan bilinn hjá pabba og kannaðist bara alls ekki við sig þarna. Pabbi fór út úr bilnum og labbaði restina af leiðinni inn á bilastæðið og afi elti....Þá komust þau loksins heim.

Æ afi minn, ég veit að þér liður vel þar sem þú ert núna. Bið að heilsa ömmu. Sjáumst.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 10:56:39 / elin

06.07.07

Á morgun er ég að fara að gifta mig....nei kannski ekki, en það hefði samt verið flott að vera með 07.07.07 og sérstaklega hefði verið gaman að gifta sig kl 07.07 og gefur það þá 07.07.07.07.07, en það verður víst ekki! Kannski í næsta lifi!

Fyrir ykkur sem ekki eru á Íslandi get ég frætt ykkur um að veðrið hefur verið alveg frábært hérna, meira að segja í Reykjavík - sem er frekar sjaldgæft!! Um helgina verður frábært veður fyrir norðan, en ekki eins gott fyrir sunnan. Kemur svo sem ekki á óvart.

Í kvöld verður landsleikur...nördalandsleikur. Óska ykkur góðs gengis Kristján Helgi og hinir!

Ég er orðin "skrásetjari" fyrir Færeyja...það er að segja að skrásetja hross í WorldFeng. Hross sem eru í Færeyjum en kannski eru skrásett á Íslandi eða jafnvel Nýja Sjálandi. Var að komast að því í gær að það eru í raun og veru 20 íslensk hross staðsett í Nýja Sjálandi...ótrúlegt. En þetta er allavega mjög gaman finnst mér að vera orðin skrásetjari. Eins og einhverjir vita hef ég óendanlegan áhuga á hrossum og ættfræði hrossa!! Núna hef ég möguleika á að sitja allan daginn og kíkja á ættir þeirra hrossa sem eru í Færeyjum til dæmis! Skrítin..ég veit!!

Jæja...best að gera eitthvað af viti og hætta að skoða hrossin!!

Góða helgi gott fólk!


» 4 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 96459
Klukkan
Könnun
Kynið á barninu
Stelpa
18 atkvæði

Strákur
14 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 32