Það hefur ekkert skeð hérna inni síðan á síðasta ári - algjör bloggstífla í gangi. Stíflan er ekki horfin, en ég vildi bara aðeins láta vita af mér.
Eftir um það bil mánuð förum við í ferðalag til Brasiliu og Argentinu, verðum þar í tvær vikur. Það verður án efa mjög gaman, allavega hef ég heyrt af skemmtilegu fólki sem ætlar með í ferðina.
Ég byrja síðan að kenna á Hvanneyri á mánudaginn, þannig að núna fer tíminn í undirbúning. Ritgerðin er í pásu...
Spennandi tími framundan! Nema það að Baldur fer til útlanda á morgun og verður úti í rúma viku - ég þoli ekki að vera ein í Reykjavík, það er eitt það versta sem getur komið fyrir mig!
Vonandi verður bloggstíflan fljót að fara...
Verið sæl!