Dansaðu eins og enginn sjái til þín...

...elskaðu eins og þú hafir aldrei verið særð!

22.05.2008 11:02:47 / elin

Vörn búin - fyrirlestur framundan

Jæja...þá er þessu næstum því lokið - náminu sko!

Á þriðjudaginn var lokuð vörn. Ég var smá stressuð, samt ekki að farast neitt. Var meira stressuð nokkrum dögum áður en vörnin átti að vera, heldur en daginn sem vörnin var. Ég var búin að heyra misjafnar sögur af prófdómaranum, en hún kom mér skemmtilega á óvart, bara mjög þægileg. Vörnin var eiginlega bara þægilegt spjall um verkefnið, ég fékk tækifæri á að rökstyðja það sem ég var búin að fullyrða í ritgerðinni. Þetta tók rétt um 2 tíma alls, síðan fengum við okkur kökur og kaffi eftirá. Mjög fínt. Ég var ekki alveg viss um hvernig þetta hefði gengið svona strax eftir vörnina, en síðan hringdi Magnús, leiðbeinandi minn, í mig þegar við Baldur vorum á leiðinni suður - ég varð mjög glöð. Hann sagði að vörnin/prófið hefið gengið mjög vel :)

Ég spurði viðstadda aðeins út í opna fyrirlesturinn. Prófdómarinn sagðist vera búinn að spyrja mig að öllu sem hún vildi vita, þannig að ég get ekki búist við neinum svakalega erfiðum spurningum frá henni á fimmtudaginn eftir viku þegar opni fyrirlesturinn verður. Það er eiginlega bara mjög gott að vita af því.

Bumbubúinn hefur hagað sér vel undanfarið. Hann bara vex og dafnar. Ég er að fara til fæðingarlæknis á eftir, það er vegna þess að ég sjálf fæddist með hjartagalla og þarf ég að fá svör við nokkrum spurningum hvað það varðar. Hvort bumbus getur verið með sama galla, hvort þarf að fara í hjartaómum ... já bara hitt og þetta. Ég vona að allt sé í lagi með hjartað í gullinu okkar.

Baldur skrifaði langa færslu á barnalandssíðuna í gær (http://augustbaby.barnaland.is). Þið getið kíkt á það.

verið sæl.

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 13:12:40 / elin

Á morgun...

Á morgun er það!

Kl 13.15 á morgun verð ég leidd inn í herbergi þar sem 3 aðilar sitja spenntir og bíða eftir að fá að grilla mig...namminamm!! Nei ég segi svona, en sem sagt er lokaða vörnin á morgun, þannig um um það bil kl 15-16 verð ég búin að verja ritgerðina og þá er bara opni fyrirlesturinn eftir - en ég er ekki mjög kviðin fyrir honum enn sem komið er.

Ég talaði aðeins við leiðbeinanda minn í morgun, hann náði að róa mig aðeins niður. Hann er ágætur karlinn!

Baldur minn ætlar að keyra mig á Hvanneyri á morgun, ég held að það er ágætt að hann geri það...veit ekki hvernig ástandið á mér verður þarna rétt fyrir dauðadóminn - eða lofsönginn :o)

Annars er litið að frétta þannig. Jú við vorum í skírn fyrir norðan í gær þar sem Jón Gunnar Kristjánsson var skírður - fallegur drengur með fallegt nafn. Dagurinn var mjög góður, góðar veitingar og góður félagsskapur.

Best að halda áfram að undirbúa vörn.

Verið sæl og blessuð.

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 09:04:29 / elin

Oh hann er svo sexýýýý!!!

Fann mynd af óhemju sexý náunga á www.eb.dk , og sá hinn sami montar sig meir að segja af því að hann getur fengið standpínu, sem hann bæ ðe vei gat ekki fyrir ekki svo löngu síðan... hann biður menn bara um að spyrja kærustu sína hvort það sé ekki satt! Ég er allavega viss um að maðurinn, hann Manuel Uribe, hefur ekki séð á sér typpið í mörg ár - standpína eða ekki! Fyrrverandi konan hans fór frá honum fyrir tveimur árum síðan og var hann voðalega miður sín - mig langar að spyrja hann hvort hann var hissa líka!? Ég held að það getur ekki verið...skil bara ekki hvernig hann hefur náð sér í nýja kærustu. Hann hefur farið út úr húsi tvisvar á síðustu sex árum, og þá með kranabil og í rúminu sínu - sem er sérsmíðað vegna þess að Manuel er hátt í hálft tonn þungur. En hér er mynd af kappanum.

Ég skil ekki hvernig menn geta orðið svona rosalegir áður en þeir fatta að fara í megrun!


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 12:59:08 / elin

Búin að jafna mig...

...eftir skilin!

Nú tekur við stress dauðans. Ég er náttúrulega alveg að farast úr stressi. Það styttist í vörn og mér líður verr og verr fyrir hvern dag sem líður!! En það verður ekki hjá þessu komið...ég get þetta!!

Með bumbus gengur bara ágætlega. Hann (já ég held að þetta sé strákur) sparkar mikið og er oft í fimleikum, vex og dafnar! Það eru komnar nýjar bumbumyndir og aðrar myndir á barnalandssíðuna. Baldur fór á feðrafræðslunámskeið í gær...væri náttúrulega við hæfi að skrifa eitthvað um það á barnalandssíðuna, en hann verður að taka upp á því sjálfur!

Jón Gunnar er farinn norður. Hann fór norður í gær og Bergþóra með honum...hún fór samt aftur suður í dag, en fallega gert af henni að skutlast með. Það var víst tilfinningarík stund þegar Jón Gunnar keyrði í hlaðið heima á Tjörnum...og ekki minna tilfinningarík stund þegar sá hinn sami fékk litla frænda sinn Kristjánsson í hendurnar.

Jæja...ég verð víst að halda áfram að undirbúa vörn...

Gangi mér vel...já takk takk elskurnar.

» 6 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 96459
Klukkan
Könnun
Kynið á barninu
Stelpa
18 atkvæði

Strákur
14 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 32